Aðstoð

Skipta um netfyrirtæki

Það er einfalt að skipta yfir til Hringiðunnar. Svona gengur það fyrir sig, skref fyrir skref.

  1. Veldu þjónustu og pantaðu

    Settu saman pakka fyrir heimilið eða fyrirtækið og sendu pöntun eða tilboðsbeiðni.

    Settu saman heimilispakka eða Settu saman pakka fyrir fyrirtæki.

  2. Við höfum samband og staðfestum tengidag

    Við förum yfir pöntunina með þér og finnum tengidag sem hentar.

  3. Router settur upp og tengdur

    Routerinn er settur upp og tengdur á tengideginum, eða þú tengir eigin router ef þú vilt það frekar.

  4. Segðu upp hjá fyrri þjónustuaðila

    Þegar nýja tengingin er komin í gagnið segir þú upp þjónustunni hjá fyrri þjónustuaðila.

  5. Skilaðu leigðum búnaði til fyrri aðila

    Ef þú ert með búnað á leigu frá fyrri þjónustuaðila, til dæmis router, skilar þú honum til hans.

Algengar spurningar

Kostar eitthvað að skipta yfir til Hringiðunnar?
Hringiðan innheimtir ekki stofngjald fyrir nettengingu eða farsímatengingu, en innviðafyrirtæki (t.d. Ljósleiðarinn, Míla eða aðrir) geta innheimt gjald ef vinna þarf aukaverk.
Hvernig segi ég upp þjónustu hjá Hringiðunni?
Uppsögn þarf að berast með sannanlegum hætti fyrir 25. dag mánaðar og tekur þá gildi frá næsta mánuði. Uppsögn tekur ekki gildi fyrr en leigðum búnaði hefur verið skilað. Nánar í viðskiptaskilmálum.
Hvenær á ég að segja upp hjá fyrri þjónustuaðila?
Best er að segja upp þegar tengidagur hjá Hringiðunni hefur verið staðfestur, svo þú verðir ekki netlaus á milli.
Get ég notað eigin router?
Já. Router fylgir með, en þú getur valið að nota eigin router í staðinn.

Ef þú hefur spurningar, hafðu samband.