
Wifi og netkerfi
Við hönnum, setjum upp og getum annast umsjón netkerfa sem styðja við öryggiskerfi fyrirtækisins. Með samræmdri lausn innan UniFi-vistkerfisins getum við auðveldað uppsetningu, þjónustu og bilanagreiningu.
Við hönnum og setjum upp öryggismyndavélar og rafræna aðgangsstýringu fyrir fyrirtæki. Við hjálpum þér að velja búnað sem hentar húsnæðinu, sjáum um uppsetningu og bjóðum áframhaldandi þjónustu samkvæmt samkomulagi.
Settu saman pakka og sjáðu verð strax eða sendu okkur tilboðsbeiðni ef þú þarft sérsniðna lausn.

Myndavélaeftirlit
Fáðu betri yfirsýn yfir húsnæði fyrirtækisins með snjöllum öryggismyndavélum. Fylgstu með í beinni, fáðu tilkynningar um mikilvæga atburði og skoðaðu upptökur þegar þörf krefur. Við hjálpum þér að velja og setja upp kerfi sem hentar þínum þörfum.

Kerfið getur greint fólk, ökutæki og hreyfingu og sent tilkynningar um valda atburði, eftir búnaði og stillingum.
Upptökur eru vistaðar á staðnum og þú getur skoðað myndavélar í beinni eða flett upp upptökum í UniFi Protect.
Við ráðleggjum um staðsetningu myndavéla, sjáum um uppsetningu og bjóðum áframhaldandi umsjón samkvæmt samkomulagi.
Aðgangsstýring
Með rafrænni aðgangsstýringu ræðurðu hverjir komast inn í húsnæði fyrirtækisins og hvenær. Kerfið heldur utan um aðgangsheimildir og skráir notkun þeirra, svo þú færð betri yfirsýn yfir aðgang að húsnæðinu. Við hjálpum þér að velja og setja upp lausn sem hentar starfseminni.

Ákveddu hvaða hurðir og svæði starfsfólk hefur aðgang að og á hvaða tímum.
Skoðaðu hvenær og með hvaða aðgangsheimild hurðir voru opnaðar. Með viðeigandi inn- og útlesurum er einnig hægt að skrá aðgangsatburði við komu og brottför.
Bættu við notendum, breyttu aðgangsheimildum eða afturkallaðu aðgang eftir þörfum. Við bjóðum einnig áframhaldandi aðstoð samkvæmt samkomulagi.
Samþættar lausnir
Með UniFi Protect og UniFi Access er hægt að samþætta öryggismyndavélar og aðgangsstýringu. Með viðeigandi búnaði geturðu meðal annars skoðað myndupptökur tengdar opnun hurða og fengið betri yfirsýn yfir aðgang að húsnæðinu.
Við hjálpum þér að skipuleggja öryggiskerfið og netbúnaðinn saman, svo lausnin henti starfseminni og auðvelt sé að halda utan um búnaðinn.
FERLIÐ
Við förum yfir húsnæði, tilgang myndavélaeftirlits og þarfir fyrirtækisins fyrir aðgangsstýringu.
Við skipuleggjum staðsetningu myndavéla, útfærslu aðgangsstýringar og val á hentugum búnaði.
Við sjáum um tæknilega uppsetningu og stillingar í samstarfi við viðeigandi fagaðila þegar þess er þörf. Áframhaldandi þjónusta og umsjón er í boði samkvæmt samkomulagi.
Búnaðarleiga og þjónusta
Öryggisþarfir fyrirtækja breytast með tímanum. Hvort sem þú byrjar með nokkrar myndavélar eða þarft að stýra aðgangi að fleiri inngöngum hjálpum við þér að velja lausn sem getur vaxið með rekstrinum.
Tengdar lausnir

Við hönnum, setjum upp og getum annast umsjón netkerfa sem styðja við öryggiskerfi fyrirtækisins. Með samræmdri lausn innan UniFi-vistkerfisins getum við auðveldað uppsetningu, þjónustu og bilanagreiningu.

Við bjóðum einnig ljósleiðaratengingar fyrir fyrirtæki. Með nettengingu, innra netkerfi og öryggislausnir hjá sama þjónustuaðila getum við samræmt þjónustu og auðveldað bilanagreiningu.
AF HVERJU HRINGIÐAN?
Sérþekking síðan 1995
Við leggjum áherslu á að skilja aðstæður og þarfir hvers fyrirtækis. Með tæknilegri þekkingu, persónulegri ráðgjöf og nánu samstarfi aðstoðum við þig við að velja og útfæra hentugar öryggislausnir.
Hvort sem þú þarft myndavélakerfi, aðgangsstýringu eða lausn sem sameinar hvort tveggja aðstoðum við þig við að finna hentuga útfærslu. Hafðu samband og fáðu ráðgjöf og sérsniðið tilboð. Þú mátt gjarnan taka fram staðsetningu, hvaða svæði þarf að vakta og hvaða innganga þarf að aðgangsstýra.
Hringiðan ehf. · Skúlagata 19, 101 Reykjavík · Virka daga 9–18 · Laugardaga 13–17
Sjá verðskrá