Upplýsingar

Persónuleg þjónusta. Reynsla síðan 1995.

Hringiðan er íslenskt fjarskiptafyrirtæki sem veitir heimilum og fyrirtækjum internet- og símaþjónustu. Fyrirtækið var stofnað í mars 1995 og er elsta starfandi internetþjónusta Íslands. Við sameinum áratuga reynslu af fjarskiptum og netkerfum við persónulega þjónustu.

Góð ráð byrja á samtali

Persónuleg þjónusta er okkar mottó. Hjá okkur felst hún í að hlusta, útskýra valkostina og hjálpa þér að velja tengingar og búnað sem henta því sem þú ætlar að gera.

Þú getur leitað til okkar þegar þú ert að velja þjónustu, þarft að breyta henni eða vantar aðstoð. Hringdu, sendu okkur tölvupóst eða komdu við á Skúlagötu 19 í Reykjavík.

Umsagnir viðskiptavina

  • „Enginn asi, góður tími gefinn fyrir viðskiptamann. Spurningum leikmanns svarað með skilmerkilegum og skiljanlegum útskýringum og þolinmæði.“

    Todda H.

    Brot úr umsögn á Google

  • „Topp þjónusta. Öll mál sem ég hef sett inn hjá þeim eru leyst mjög hratt og örugglega. Næstum því pirrandi hratt !“

    Arnar S.

    Umsögn á Google

  • „Traust og góð þjónusta enda hef ég átt í viðskiptum við Hringiðan Internetþjónusta í 27 ár.“

    Benedikt S.

    Umsögn á Google

Frá upphringingu til ljósleiðara

Hringiðan hóf starfsemi í Tæknigarði í Reykjavík árið 1995, þegar internetið var að ryðja sér til rúms á íslenskum heimilum og vinnustöðum. Síðan höfum við tekið þátt í þróuninni frá upphringimótöldum og ISDN yfir í ljósleiðara og háhraðatengingar.

Við höfum ítrekað verið fyrst til að kynna nýja möguleika í internetþjónustu á Íslandi. Sú saga snýst bæði um hraðari tengingar og aukið frelsi til að nota netið.

  • Ótakmarkað gagnamagn

    Við vorum fyrst á Íslandi til að bjóða internettengingar með ótakmörkuðu gagnamagni.

  • Ljósleiðari fyrir heimili

    Við vorum fyrst til að bjóða heimilum á Íslandi 100, 400 og 1.000 Mb/s ljósleiðaratengingar.

  • 10 Gb/s fyrir fyrirtæki

    Við vorum fyrst til að bjóða fyrirtækjum á Íslandi 10 Gb/s ljósleiðaratengingar.

Þjónustan hefur haldið áfram að þróast. Árið 2013 bættist farsímaþjónusta við og árið 2023 kynntum við 2,5, 5 og 10 Gb/s ljósleiðaratengingar fyrir heimili.

Viltu ná í okkur? Á síðunni Hafa samband finnur þú síma, netfang og opnunartíma.

Fyrir heimilið og vinnustaðinn

Heimili

Við tengjum heimili með ljósleiðara og bjóðum farsíma, ferðanet og heimasíma. Við hjálpum þér að velja þjónustu út frá notkun heimilisins, hvort sem þú leitar að einni áskrift eða vilt sameina fjarskiptin í pakka.

Fyrirtæki

Við höfum áratuga reynslu af ráðgjöf og uppsetningu netkerfa fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. Verkefnin geta verið allt frá þráðlausu neti á vinnustað að tengingum milli starfsstöðva og varatengingum. Við bjóðum einnig símkerfi (UniFi Talk og hýst 3CX), Microsoft 365 og hýsingu.

Skoða lausnir fyrir fyrirtæki

Hvað getum við aðstoðað þig með?

Hvort sem þú ert að velja nettengingu fyrir heimilið eða skipuleggja netkerfi fyrir fyrirtækið er velkomið að hafa samband. Við förum yfir málin með þér.