Háhraða ljósleiðari fyrir heimilið

Fáðu öfluga ljósleiðaratengingu fyrir allt heimilið, hvort sem þú vinnur heima, streymir eða spilar. Veldu 1, 2,5 eða 10 Gb/s hraða eftir þínum þörfum og njóttu stöðugrar nettengingar alla daga.

Heimili tengt ljósleiðara, fólk í streymi og fjarvinnu

Router fylgir með öllum netpökkum

Leiga á router er innifalin í verðinu – ekkert sérstakt gjald fyrir router bætist við.

1 Gb/s

11.990 kr./mán.

Öflug tenging fyrir streymi, leiki og alla daglega netnotkun.

Mælum með

2,5 Gb/s

12.990 kr./mán.

Enn meiri hraði fyrir stór niðurhöl og aukið svigrúm.

10 Gb/s

15.990 kr./mán.

Hámarkshraði fyrir þau sem vilja það allra besta.

Algengar spurningar

Er ljósleiðari í boði á mínu heimili?

Hringiðan býður upp á ljósleiðaratengingar alls staðar þar sem ljósleiðarainnviðir eru til staðar, meðal annars í gegnum kerfi Ljósleiðarans, Mílu og Tengis.

1 Gb/s tenging er í boði á öllum heimilum með aðgang að ljósleiðara, en framboð á 2,5 og 10 Gb/s fer eftir innviðum á hverjum stað.

Þegar pöntunarbeiðni berst höfum við samband við þig og staðfestum hvaða hraðakostir eru í boði á þínu heimili.

Hvaða nethraði hentar heimilinu mínu?

1 Gb/s: Hentar langflestum heimilum, jafnvel þótt margir noti netið samtímis. Nægur hraði fyrir 4K streymi, tölvuleiki, fjarvinnu og almenna netnotkun.

2,5 Gb/s: Fyrir heimili sem vilja meiri afköst, sérstaklega þar sem margir nota netið mikið samtímis eða reglulega er unnið með stórar skrár. Við mælum með 2,5 Gb/s fyrir heimili þar sem mörg tæki eru í notkun samtímis, því aukinn hraði gefur svigrúm svo að stór niðurhöl og uppfærslur hægja síður á öðrum tækjum á heimilinu.

10 Gb/s: Fyrir þau sem gera mestar kröfur til nettengingarinnar, svo sem tækniáhugafólk og heimili þar sem unnið er með mjög stór gagnasöfn eða reknir eigin netþjónar.

Fæ ég alltaf uppgefinn nethraða?

Uppgefinn nethraði miðast við bestu aðstæður. Hraðinn sem mælist á einstökum tækjum fer meðal annars eftir búnaði og því hvort þau eru tengd með netsnúru eða Wifi.

Á 1 Gb/s ljósleiðaratengingu má almennt búast við um 850–940 Mb/s þegar hraðinn er mældur með netsnúru innan viðkomandi ljósleiðarakerfis, að því gefnu að búnaður og aðstæður leyfi. Hraði yfir Wifi getur verið lægri og ræðst meðal annars af fjarlægð frá router og hindrunum á milli tækja.

Er gagnamagnið ótakmarkað?

Já, allar ljósleiðaratengingar Hringiðunnar eru með ótakmörkuðu gagnamagni, án aukagjalda fyrir gagnanotkun. Hringiðan áskilur sér þó rétt til að grípa til viðeigandi ráðstafana ef óhófleg notkun hefur áhrif á öryggi eða stöðugleika fjarskiptanetsins, í samræmi við gildandi viðskiptaskilmála.

Fylgir router með ljósleiðaraáskriftinni?

Já, leiga á router fylgir öllum ljósleiðaraáskriftum fyrir heimili án aukagjalds. Þú þarft því ekki að kaupa eigin router til að komast á netið.

Get ég notað minn eigin router?

Já, þér er velkomið að nota þinn eigin router og mánaðargjaldið er það sama hvort sem þú notar router frá Hringiðunni eða þinn eigin.

Við mælum almennt með router frá okkur þar sem við þekkjum búnaðinn vel og getum því veitt markvissari tæknilega aðstoð ef vandamál koma upp. Við aðstoðum einnig viðskiptavini sem nota eigin router eftir bestu getu.

Hversu langan tíma tekur að tengja ljósleiðarann og hvenær verður tengingin virk?

Það fer eftir því hvort ljósleiðari og nauðsynlegur tengibúnaður eru þegar til staðar á heimilinu. Þar sem allt er tilbúið er oft hægt að virkja tenginguna samdægurs eða innan örfárra daga.

Ef setja þarf upp tengibúnað eða leggja nýjan ljósleiðara getur ferlið tekið lengri tíma. Við könnum stöðuna og upplýsum þig um áætlaðan virkjunartíma þegar pöntunarbeiðni berst.

Ef þú ert að skipta yfir til Hringiðunnar frá öðrum þjónustuaðila er yfirleitt hægt að halda núverandi tengingu virkri þar til skiptin fara fram, svo þú verðir ekki netlaus að óþörfu.

Þarf ég að greiða stofngjald fyrir ljósleiðaratenginguna?

Nei, Hringiðan innheimtir ekkert stofngjald þegar þú gerist áskrifandi hjá okkur.

Ef ekki er búið að tengja ljósleiðara við heimilið gæti innviðafyrirtækið þó innheimt gjald fyrir uppsetningu eða framkvæmdir. Við könnum það alltaf fyrirfram og upplýsum þig um mögulegan kostnað áður en ráðist er í framkvæmdir.