Fyrirtæki

Fjarskipti og netlausnir fyrir fyrirtæki

Fyrirtækjanet, netkerfi og öryggi, hugbúnaður og þjónusta – allt fyrir daglegan rekstur. Við hjálpum þér að velja lausnir sem henta fyrirtækinu og erum til staðar þegar á reynir.

Nettengingar

Fyrirtækjanet fyrir reksturinn

Ljósleiðari fyrir daglegan rekstur, 5G varatengingar og sértengingar fyrir fyrirtæki með sérhæfðar þarfir.

Netkerfi og öryggi

Netkerfi og öryggislausnir fyrir fyrirtæki

Við hönnum, setjum upp og getum annast umsjón netkerfa, öryggismyndavéla og aðgangsstýringar. Með heildstæðri nálgun getum við samræmt uppsetningu og þjónustu innan UniFi-vistkerfisins.

Hugbúnaður og þjónusta

Hugbúnaður og þjónusta fyrir reksturinn

Microsoft 365, símkerfi (UniFi Talk og hýst 3CX) og vefhýsing með ráðgjöf og aðstoð eftir þörfum.

AF HVERJU HRINGIÐAN?

Sérþekking síðan 1995

Traustur samstarfsaðili fyrir þinn rekstur

Við sameinum víðtæka þekkingu og áratuga reynslu af fjarskiptum við persónulega þjónustu. Hjá Hringiðunni færðu beina ráðgjöf, náin samskipti og lausnir sem taka mið af þörfum þíns fyrirtækis.

Finnum réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki

Segðu okkur hvaða þjónustu þig vantar, hvar hennar er þörf og hvernig við getum náð í þig. Við förum yfir málið með þér.

Hringiðan ehf. · Skúlagata 19, 101 Reykjavík · Virka daga 9–18 · Laugardaga 13–17

Sjá verðskrá