Aðstoð
Spurt og svarað
Algengar spurningar um þjónustu Hringiðunnar, áskriftir, nettengingar, farsíma, reikninga og fyrirtækjalausnir.
Fleiri leiðbeiningar, til dæmis um að skipta um netfyrirtæki.
Heimanet og ljósleiðari
- Er ljósleiðari í boði á mínu heimili?
Hringiðan býður upp á ljósleiðaratengingar alls staðar þar sem ljósleiðarainnviðir eru til staðar, meðal annars í gegnum kerfi Ljósleiðarans, Mílu og Tengis.
1 Gb/s tenging er í boði á öllum heimilum með aðgang að ljósleiðara, en framboð á 2,5 og 10 Gb/s fer eftir innviðum á hverjum stað.
Þegar pöntunarbeiðni berst höfum við samband við þig og staðfestum hvaða hraðakostir eru í boði á þínu heimili.
- Hvaða nethraði hentar heimilinu mínu?
1 Gb/s: Hentar langflestum heimilum, jafnvel þótt margir noti netið samtímis. Nægur hraði fyrir 4K streymi, tölvuleiki, fjarvinnu og almenna netnotkun.
2,5 Gb/s: Fyrir heimili sem vilja meiri afköst, sérstaklega þar sem margir nota netið mikið samtímis eða reglulega er unnið með stórar skrár. Við mælum með 2,5 Gb/s fyrir heimili þar sem mörg tæki eru í notkun samtímis, því aukinn hraði gefur svigrúm svo að stór niðurhöl og uppfærslur hægja síður á öðrum tækjum á heimilinu.
10 Gb/s: Fyrir þau sem gera mestar kröfur til nettengingarinnar, svo sem tækniáhugafólk og heimili þar sem unnið er með mjög stór gagnasöfn eða reknir eigin netþjónar.
- Fæ ég alltaf uppgefinn nethraða?
Uppgefinn nethraði miðast við bestu aðstæður. Hraðinn sem mælist á einstökum tækjum fer meðal annars eftir búnaði og því hvort þau eru tengd með netsnúru eða Wifi.
Á 1 Gb/s ljósleiðaratengingu má almennt búast við um 850–940 Mb/s þegar hraðinn er mældur með netsnúru innan viðkomandi ljósleiðarakerfis, að því gefnu að búnaður og aðstæður leyfi. Hraði yfir Wifi getur verið lægri og ræðst meðal annars af fjarlægð frá router og hindrunum á milli tækja.
- Er gagnamagnið ótakmarkað?
Já, allar ljósleiðaratengingar Hringiðunnar eru með ótakmörkuðu gagnamagni, án aukagjalda fyrir gagnanotkun. Hringiðan áskilur sér þó rétt til að grípa til viðeigandi ráðstafana ef óhófleg notkun hefur áhrif á öryggi eða stöðugleika fjarskiptanetsins, í samræmi við gildandi viðskiptaskilmála.
- Fylgir router með ljósleiðaraáskriftinni?
Já, leiga á router fylgir öllum ljósleiðaraáskriftum fyrir heimili án aukagjalds. Þú þarft því ekki að kaupa eigin router til að komast á netið.
- Get ég notað minn eigin router?
Já, þér er velkomið að nota þinn eigin router og mánaðargjaldið er það sama hvort sem þú notar router frá Hringiðunni eða þinn eigin.
Við mælum almennt með router frá okkur þar sem við þekkjum búnaðinn vel og getum því veitt markvissari tæknilega aðstoð ef vandamál koma upp. Við aðstoðum einnig viðskiptavini sem nota eigin router eftir bestu getu.
- Hversu langan tíma tekur að tengja ljósleiðarann og hvenær verður tengingin virk?
Það fer eftir því hvort ljósleiðari og nauðsynlegur tengibúnaður eru þegar til staðar á heimilinu. Þar sem allt er tilbúið er oft hægt að virkja tenginguna samdægurs eða innan örfárra daga.
Ef setja þarf upp tengibúnað eða leggja nýjan ljósleiðara getur ferlið tekið lengri tíma. Við könnum stöðuna og upplýsum þig um áætlaðan virkjunartíma þegar pöntunarbeiðni berst.
Ef þú ert að skipta yfir til Hringiðunnar frá öðrum þjónustuaðila er yfirleitt hægt að halda núverandi tengingu virkri þar til skiptin fara fram, svo þú verðir ekki netlaus að óþörfu.
- Þarf ég að greiða stofngjald fyrir ljósleiðaratenginguna?
Nei, Hringiðan innheimtir ekkert stofngjald þegar þú gerist áskrifandi hjá okkur.
Ef ekki er búið að tengja ljósleiðara við heimilið gæti innviðafyrirtækið þó innheimt gjald fyrir uppsetningu eða framkvæmdir. Við könnum það alltaf fyrirfram og upplýsum þig um mögulegan kostnað áður en ráðist er í framkvæmdir.
- Er upphleðsluhraðinn jafn niðurhalshraðanum?
Já, ljósleiðaratengingar Hringiðunnar eru samhverfar, sem þýðir að uppgefinn hámarkshraði er sá sami í upphleðslu og niðurhali. Hraðinn sem mælist á einstökum tækjum getur þó verið breytilegur eftir búnaði og aðstæðum.
- Hvað get ég gert ef Wifi nær ekki um allt heimilið?
Það er oft hægt að bæta Wifi með því að breyta staðsetningu routersins eða bæta við búnaði sem tryggir betra samband um allt heimilið.
Ef Wifi-tenging er ekki nægilega góð hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við aðstoðum þig við að finna bestu lausnina fyrir þitt heimili.
- Hvað gerist ef ljósleiðaratengingin bilar?
Ef ljósleiðaratengingin bilar skaltu hafa samband við okkur í síma 525 2400 eða senda tölvupóst á hringidan@hringidan.is.
Við aðstoðum þig við að finna orsök bilunarinnar og sjáum til þess að unnið sé að því að koma tengingunni aftur í lag.
- Hvaða router fylgir ljósleiðaraáskriftinni?
Routerinn sem fylgir áskriftinni fer meðal annars eftir þeim tengihraða sem þú velur. Við veljum búnað sem hentar hverri tengingu og uppfærum úrvalið reglulega í takt við tækniþróun.
Ef þú vilt vita nákvæmlega hvaða router fylgir þinni áskrift eða hefur spurningar um búnaðinn okkar er þér velkomið að hafa samband.
Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
Við aðstoðum þig gjarnan. Hafðu samband og við hjálpum þér að finna réttu upplýsingarnar.
