Aðstoð

Spurt og svarað

Algengar spurningar um þjónustu Hringiðunnar, áskriftir, nettengingar, farsíma, reikninga og fyrirtækjalausnir.

Fleiri leiðbeiningar, til dæmis um að skipta um netfyrirtæki.

Farsími

  • Hvaða farsímaáskrift hentar mér best?

    Það fer eftir því hvernig þú notar netið í símanum. Smá net (5 GB) hentar vel þeim sem nota farsímanetið lítið, til dæmis aðallega til að vafra á netinu og skoða samfélagsmiðla. Meira net (30 GB) er góður kostur fyrir daglega notkun, en Hellings net (60 GB) hentar þeim sem nota farsímanetið mikið, til dæmis til að horfa reglulega á myndbönd.

    Ef þú ert með ljósleiðara frá Hringiðunni er Ótakmarkað net sérstaklega hagstæður kostur á aðeins 2.990 kr./mán. Þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af gagnamagninu innanlands.

  • Hvernig virkar Roam Like Home innan EES og í Bretlandi?

    Með Roam Like Home geturðu notað farsímann á ferðalögum innan EES og í Bretlandi á sambærilegum kjörum og heima á Íslandi. Þú getur hringt og sent SMS til Íslands án sérstaks reikigjalds.

    Gagnamagn innan EES og í Bretlandi fer eftir áskriftinni þinni:

    • Smá net (5 GB): 5 GB
    • Meira net (30 GB): 30 GB
    • Hellings net (60 GB): 30 GB
    • Ótakmarkað net: 30 GB
  • Get ég fengið eSIM eða hefðbundið SIM-kort?

    Já, Hringiðan býður bæði upp á eSIM og hefðbundin SIM-kort. Það fer fyrst og fremst eftir símanum þínum og þínum óskum hvort hentar betur.

  • Hvaða dreifikerfi notar Hringiðan og hvar er 5G í boði?

    Farsímaþjónusta Hringiðunnar notar dreifikerfi Nova, sem býður upp á víðtækt 5G- og 4G-samband.

    Þú getur skoðað hvar 5G og 4G (LTE) er í boði á þjónustusvæðakorti Nova (opnast í nýjum flipa).

  • Hvernig virkar afslátturinn af ótakmarkaðri farsímaáskrift með ljósleiðara?

    Með ljósleiðara frá Hringiðunni færðu ótakmarkaða farsímaáskrift á aðeins 2.990 kr./mán. í stað 6.990 kr./mán.

    Afslátturinn gildir á meðan þú ert með virka ljósleiðaraáskrift hjá okkur.

  • Hvað gerist ef ég klára innifalið gagnamagn?

    Ef þú notar meira gagnamagn en fylgir farsímaáskriftinni berum við saman kostnað við umframnotkunina og næstu stærri áskriftarleið fyrir þann mánuð. Þú greiðir það sem er ódýrara.

    Með ótakmarkaðri farsímaáskrift þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að klára innifalið gagnamagn innanlands.

  • Hvað kostar að nota farsímann utan EES og Bretlands?

    Kostnaður við notkun farsímans utan EES og Bretlands fer eftir því í hvaða landi þú ert og hvort þú notar gagnamagn, hringir eða sendir SMS.

    Þú getur skoðað gjöld fyrir notkun erlendis í verðskrá Hringiðunnar.

  • Get ég sagt upp einni farsímaáskrift án þess að það hafi áhrif á ljósleiðaraáskriftina?

    Já, þú getur sagt upp, breytt eða bætt við farsímaáskriftum án þess að það hafi áhrif á ljósleiðaraáskriftina þína.

  • Get ég haldið símanúmerinu þegar ég skipti yfir til Hringiðunnar?

    Já, þú getur haldið núverandi símanúmeri þegar þú skiptir yfir til Hringiðunnar. Þú þarft því ekki að breyta um númer þegar þú færir farsímaþjónustuna til okkar.

Sjá nánar um Farsíma

Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?

Við aðstoðum þig gjarnan. Hafðu samband og við hjálpum þér að finna réttu upplýsingarnar.